Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Broskallafærsla

Jæja, kominn tími til að senda þessa kjánalegu fyrirsögn aðeins neðar á blogglistann. Veit að mér tókst að plata tvær manneskjur...annari fannsr ég fyndin, veit ekki með hina Smile

Takk fyrir öll fallegu kommentin, msn skilaboðin og hringingarnar. Mér finnst ég vera svo vinsæl Cool 

Nú eru uppi miklar pælingar um hvort við getum gift okkur í sumar. Bæði geðheilsa og fjárhagur eru að veði. Sjáum til hvernig fer. Ætli Dómkirkjan sé laus einhvertíma í júlí ... Shocking

Langaði að deila með ykkur ótrúlegri sögu. Ég varð svo hissa á að heyra  þetta að ég verð bara láta fólk vita af þessum ósköpum !! Bókin hans Þorgríms Þráinssonar bjargaði actually sambandi !! Gasp Ég veit, ég trúði þessu ekki heldur. Stelpa sem ég kannast við var búin að vera með manni í fjögur ár og var alveg komin með nóg af ráðríki og afbrýðisemi mannsins. Týpískt svona hann má fara út með vinum þegar hann vill en hún mátti ekki fara út með sínum vinkonum út af afbrýðisemi og ótta við að hún fyndi einhvern annan osfrv osfrv... Hún gaf honum bókina í jólagjöf og þá allt í einu fattar hann að það er allt í lagi og alveg eins bráðnauðsynlegt fyrir hana eins og það er fyrir hann að eiga sér áhugamál utan sambandsins. OMG... Hann var að hennar sögn nánast fluttur út þegar allt í einu kviknaði á ljósaperu yfir hausnum á henni og allt varð betra ÚT AF ÞESSARI ÖMURLEGU BÓK. Ef við Stefán Bogi lendum einhverntíma í svona krísu þá vona ég að það verði eitthvað alemnnilegt en ekki eitthvað svona stúpid sem bjargar sambandinu okkar FootinMouth


Ég á ekki kærasta lengur...

 

 

 

 

 

 

 

 

Ýmislegt 058

 

En ég á unnusta Heart


Friends

Var að horfa á friends núna á stöð tvö. Einn af "thanksgiving" þáttunum. Oh stundum gleymir maður hvað þetta er mikil snilld. Þetta er meira að segja þáttur sem við systurnar vitnum reglulega í ...fattaði það bara ekki fyrr en tilvitnanirnar komu.

Phoebe:"hello ! My name is Klonkers...can I please stay with you nice people ??"

 

Joey:"it´s a moo point!"

Rachel:" a moo point ?"

Joey: " yeah, it´s like a cows oppenion (!), it doesent matter...it´s moo !"           **aaaaaaaaahahahahah****

Rachel: " have I been living with him to long or did that actually make sense ??"

 

Joey: " when the pacake is this pretty, nobody cares whats inside !!"

 

Shitt hvað maður slappast í ritaðri ensku eftir að maður hætti í skóla !!! Skerí LoL

Heiða fékk bílahálsmenið. Henni finnst það flott og ætlar að ganga með það. Ég hélt þó keðjunni.

Labbaði uppá Esjuna á sunnudaginn. Einhver framsóknarferð sem Stefán plataði mig í. Það var nú bara fínnt. Er með smá harðsperrur í lærum og rassi í dag og í gær en ekkert alvarlegt. Ég mundi það nú alveg áður en við lögðum af stað að þegar maður fer upp þá verður maður líka að fara niður. Ég var bara búin að gleyma því að ég fæ illt í hnéð þegar ég labba niður. Ég var því dauðfegin að við tókum göngustafina með þó að mér finndist það pínu asnalegt að fara með stafi á Esjuna. Þakkaði fyrir það eftir tíu skref niður í mót. Og svo rann ég aðeins á rassinn á leiðinni niður og fékk blautann rass. Það var ekki gaman. En labbið sjálft var fínnt. Nú er bara að dröslast aftur í sumar þegar snjórinn er farinn og það er auðveldara að fara uppá topp Wink

Var á námskeiði í dag í vinnunni. Það var í sjálfu sér mjög gaman en það var nokkuð skemmtilegra að líta út um gluggann og sjá Guðmund Karl með velltibílinn fyrir utan. Hann leyfði mér að fara eina bunu í bílinn og ég losaði mig úr beltinu mínu á hvolfi. Maður verður aldrei of gamall fyrir smá snúning Cool Hann varð líka að passa mig extra vel. Ef eitthvað hefði komið fyrir mig þá þarf hann að sofa í herbergi með Stefáni Boga í Prag Tounge


Eldaðu maður!

Lofaði að sýna hérna hálsmenið sem ég vann á árshátíðinni minni um síðustu helgi.

Ýmislegt 023

Smart ha !!  Hef hugsað mér að eiga keðjuna en ef einhvern langar til að ganga með þetta þá má sá hinn sami láta mig vita og það er aldrei að vita nema ég gefi viðkomandi  þetta hálsmen...með keðjunni!!

Fyrst ég er byrjuð á þessari myndasýningu þá er þetta Kústur þegar ég týndi honum um daginn og fann hann inni í skáp!

Ýmislegt 019

Þarna sést líka glitta í kjólinn sem ég keypti fyrir árshátíðina og réttlætti kaupin svo með því að ég ætlaði líka að vera í honum í brúðkaupi í sumar LoL Svona getur maður verið sniðugur.

Ég fékk Sólveigum með mér í bæjarferð í gær. Ljómandi gaman að kíkja í bæinn í góðu veðri á góðum vordegi. Ákvað að vera svona einu sinni svona spontant romantic og keypti eina bók til að gefa Stefáni. Þegar ég hitti hann svo seinna um daginn þá situr hann í bílnum sínum með nýja bók....svo förum við í mat til tengdó þar sem hún gefur honum matreiðslubókina "eldaðu maður!" Fannst eins og litla gjöfin mín væri ekkert spes lengur Shocking Allt í lagi. Ég les hana þá bara og heimta kvöldmat úr "Eldaðu maður!".


Vor...not!

Það er bara alltaf þannig að þegar maður heldur að vorið sé að koma þá ákveður veðrið að segja "abbabbbabb, augnablik, smá hérna snjór fyrst...." Gaman að þessu. Líka gaman að fólkinu sem heldur að snjórinn sé glær en ekki hvítur og finnst því tilgangslítið að skafa af ljósunum á bílunum sínum.

Fór á árshátíð á laugardaginn hjá vinunni. Hitti þar blindfulla frænku sem ég mundi ekkert eftir en hún mundi eftir mér. Hún var víst farin heim áður en eftirrétturinn kom ! Ekki að það hafi verið eitthvað svo snemmt...maturinn kom mjög hægt. Borðhald átti að hefjast klukkan átta en við fengum forréttinn rúmlega níu, aðallréttinn rúmlega tíu og eftirréttinn um ellefu. Maturinn var ágætur. Verð samt að viðurkenna að Broadway er bara einn besti árshátíðarstaður sem ég hef farið á. Þessi var í nýja salnum í turninum á smáranum. Greinilega allt á byrjunarreit þar ennþá...nema kannski útsýnið. Það var flott. Heiðskýrt allt kvöldið svo það var hægt að njóta þess. Veislustjórarnir ömurlegir. Einhverjar tvær konur sem voru ekki alveg að brillera. Önnur er fyrrverandi dragkonungur og hin var í hlutverki óþolandi þjónsins. Var ekki alveg að gera sig. En ég vann í happdrætti. Íþróttatösku, dvd mynd og ljótasta hálsmen sem ég hef séð. Verð að setja mynd af því við tækifæri.

En merkilegt nokk þá var bara samt mjög gaman


Bölvar tuð og röfl

ég á myndavél þannig að bráðum get ég farið að setja inn svona myndablogg (þegar og ef ég nenni). Er að vinna. Er ein að sjá um sex gaura. Er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri en þetta er ágætt þar sem það er svo góð afsökun fyrir að gera ekki of mikið....shitt er að skrifa þetta í vinnunni þannig að það er ekkert mál fyrir yfirmennina að kíkja á þetta. Úps...en það er ekki eins og ég sé að vanrækja neitt. Allir fá að borða, fá lyfin sín og fara í rúmmið á skikkanlegum tíma. Er kannski ekki að þvo og þrífa í öllum íbúðum en það er allt í lagi. Síðast þegar þetta ástand var þá pantaði ég mat frá Nings. Núna var ég rosa heimilisleg og bjó til grjónagraut á línuna. Soldið spes þar sem grauturinn var úr g-mjólk. Og svo gerði ég lítinn skammt úr hrísmjólk. Maður lærir svo sannarlega að redda sér í þessari vinnu. Bjó til lasagna á þriðjudaginn og það vantaði nánast allt til að búa það til nema kjötið. Það varð ágætt nema ég þurfti að nota glúteinslaust pasta...það var vont.

Við erum búin að fá jákvæð svör úr báðum greiðslumötunum okkar. Gott mál gott mál. Nú er bara að finna sér tíma til að fljúga austur og skrifa undir kaupsamning. Víhú !! Var reyndar að komast að því að fasteignaskatturinn er mun hærri en okkur var sagt. Okkur var sagt að hann væri um 70 þús á mánuði. Svo var ég að skoða hús sem er einu herbergi (13 fm) stærra en okkar og skatturinn á því er 140 þús. Fannst það ekki alveg geta staðist. Kemur í ljós að skatturinn sem er á okkar íbúð er miðuð við fokhelt hús...mun væntanlega hækka helling þegar við þurfum að borga af því. Mér finnst það alveg eðlilegt en ég þoli ekki að svona surprise. Ef mér er sagt að það sé svona mikið þá á það að vera þannig. Mistök hjá fasteignasalanum...já já allir eru mannlegir og what ever...ég má samt vera pirruð í nokkra daga.

Svo held ég að ríkisstjórnin sé að hlera okkur. Stefán Bogi sagði að þessi ríkisstjórn myndi aldrei afnema stimpilgjöldin hvorki af fyrstu íbúð né öðrum. Og hvað gerist ?? Við kaupum íbúð og þeir ætla að afnema gjöldin 1.júlí. Þá verðum við búin að kaupa og búin að borga...geta þeir ekki haft þetta afturvirkt um sex mánuði !!! En ég held að þeir hafi verið að bíða eftir að Stefán skrifaði undir samning og þá sagt " ok hann er búinn að kvitta...getur ekkert gert...verður að borga ... hahaha afnemum gjöldin af fyrstu íbúð tralalalala"  

Bara á Alþingi


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband