Nagli í hausinn

Ég hef verið að spá undanfarið hvað fólk heldur um þá ákvörðun mína (okkar) að flytja til Egilsstaða. Ég fæ hroll við tilhugsunina um að fólk haldi að ég sé að flytja FYRIR Stefán Boga og að hann hljóti að hafa sannfært mig um að drattast með sér. Þoli ekki þegar fólk dirfist að halda að ég sé svo ósjálfstæð. Stefán Bogi sagði mér af hverju hann hefur ekki áhyggjur af því (lengur) að þetta sé ástæðan.

"Þú ert of eigingjörn ! Þú myndir aldrei gera þetta bara fyrir mig."

Er ekki frá því að hann hafi hitt naglann rækilega á höfuðið ! LoL 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagný Guðmundsdóttir

haha brilliant!! þess má geta að ég sá ykkur skötuhjú á N1 í ártúnsholti á laugardagskvöldið ... en þar sem ég var nú bara að keyra í gegnum planið til að komast út á ártúnsbrekkuna þá var ég ekkert að stoppa og segja hæ :p

en ég vona að ísinn hafi smakkast vel!  

Dagný Guðmundsdóttir, 1.4.2008 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband