Kústurinn minn

Ég á svo skondinn kött. Hann er alltaf að ræna tuskuöndinni sem ég hef sem skraut á öðrum hátalaranum mínum. Aumingja öndin, kannski heldur hann að hún sé alvöru og er bara að veiða. Annars er ég að reyna að rugla hann í ríminu. Keypti handa honum mús sem gefur frá sér fuglahljóð þegar maður fiktar í henni. Skondin hugmynd að kattardóti! Var líka búin að kaupa á hann ól svona ef hann skildi hlaupa út og týnast. En hann er einhvernvegin búinn að ná henni af sér og týna henni. Hún er hérna einhverstaðar í íbúðinni, en ég hef ekki hugmynd um hvar hún er. Líklegast undir sófa eða rúmmi eða þessháttar.

Ég er komin með svo mikla leið á coke zero auglýsingunum. Mér finnst þær svo heimskulegar.

Dæmi: Af hverju ekki kynlíf sem zero forleik? Döhhh....það yrði svo leiðinlegt til lengdar.

Af hverju ekki stöðumælaverðir með zero prik í r***gatinu? Eru það ekki frekar þeir sem borga ekki í stöðumælinn sem eru með prik í bossanum ?

Af hverju ekki föt með zero þvotti ? Hættu þessu væli og þrífðu fötin þín strákbjáni !

Af hverju ekki helgi með zero þynnku? Nó problemo....hættu að drekka eða vertu aðeins skynsamari!

Hey ég veit um eina góða línu : af hverju ekki auglýsing með zero væli og aumingjagangi ?? Nei ég segi svona....

Er að fara í sumarbústað um páskana og ég hlakka svo til. Langt síðan ég hef farið í sumarbústað með famelíunni. Þetta er það sem ég ætla að gera um páskana: borða, sofa, fara í gönguferðir, fara í pottinn, lesa, spila, lita og leika mér. Mér finnst þetta gott plan. Kústurinn minn fer í pössun til kisumömmu sinnar. Vona að þau nái vel saman aftur, verði ekki nein valdabarátta í gangi Smile Annars er Hugrúnin mín komin heim, vey! I think she missed me Cool Jæja ég er orðin andlaus.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey hvað á það að þýða að vera að segja svona um stöðumælaverði, þeir eru bara að vinna vinnuna sína. Mundu bara að leggja löglega og eða borga í mælinn híhíhí

kv. Sigurlaug

Sigurlaug (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

Þetta var ekki skot frá mér á stöðumælaverði, ég var að verja þá. Þetta er ein af þessum ömurlegu auglýsingum frá coke zero.... saklaus englabossi ég !!

Heiðdís Ragnarsdóttir, 13.4.2007 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband