Simmsalabimm

Þrátt fyrir skrautlegann árangur við eldun saltfisks í síðustu viku þá held ég að ég sé að sjóast í fiski eldamennsku með vinnu minni á sambýlinu. Ég vinn nefninlega oft á fimmtudögum og það er alltaf einhver fiskur í matinn á fimmtudögum. Í þessari viku var ég með ofnbakaðann lax með sætum kartöflum og sallati. Ég sem borða nánast alldrei lax. Það tókst mun betur en þessi lúmski saltfiskur þarna um daginn.

Fór á bókasafnið í vikunni. Fannst ég rosalega heppin þegar ég náði í nýju bókina eftir manninn sem skrifaði flugdrekahlauparann. Ég er svo heiðarleg að ég fer strax og spyr hvort að bókin sé nokkuð frátekin. Konan tékkar og segir að hún sé laus. Ég er þá í ca. 10-15 mínútur í viðbót að leita mér að fleiri bókum. Þegar ég ætla svo að taka bækurnar þá er þessi bók tekin af mér af því að hún var frátekin. Ég spyr hvort að það hafi gerst á þessum mínútum sem ég var á staðnum með bókina í hendinni. Sú kona gat nú ekki séð það í tölvunni hjá sér. Segir svo við mig "þetta er sko nýja bókin eftir manninn sem skrifaði flugdrekahlauparann !!!"  Stefán Bogi segir að ég sé rugluð að halda þessu fram og að þetta sé bara ímyndun í hausnum á mér EN ég get svo svarið það konan sagði þetta við mig eins og ég væri hálfviti... auðvitað vissi ég hvaða bók þetta var og að hún væri vinsæl...þess vegna tékkaði ég á henni um leið og ég sá hana... leiðindar $/&%#$ kona. Kannski er ég bara bjáni en svona framkoma fólks við ókunnuga finnst mér viðbjóðslega pirrandi. Þetta hefur svo mikil áhrif á mig. Veit að maður á ekki að láta svona hafa áhrif á sig en ég bara verð svo pirruð. Aðallega á fólkinu að leyfa sér að tala svona við annað fólk.

Annað dæmi þar sem Stefán Bogi sagði að ég væri rugluð (þó að hann hafi ekki verið á staðnum í hvorugu dæmanna). Ég var á bensínstöð þar sem var verið að bjóða upp á dælulykil. Ég er með lykil hjá atlantsolíu og langar ekkert í annan. Þegar ég vil ekki hlusta á tilboð mannsins og segist vera með annan þá segir hann við mig "jah...þú veist ekki hverju þú ert að missa af". Og það er ekki hvað hann sagði, heldur hvernig hann sagði það...eins og ég væri fæðingarhálfviti fyrir að láta ekki glepjast af tilboðinu hans. Þoli ekki þegar ókunnugu fólki tekst að láta mér líða þannig í smá stund...og þoli það ekki að fólk skuli leyfa sér að tala svona við annað fólk!

Ok pirringspistli dagsins lokið. Lét Stefán Boga plata mig í gær á eitthvað skemmtikvöld hjá framsóknarmönnum í mosfellsbæ. Bjóst nú ekki við því að skemmta mér neitt allt of vel, en það var bara mjög gaman. Var með Stefán öðrum megin við mig. Hann talaði reyndar mjög lítið við mig þar sem eldri maður sat á móti honum en sá maður bjó fyrir austan í einhver ár og þar af leiðandi gátu þeir talað saman allt kvöldið. Sá maður spyr fólk alltaf hvaðan það sé. Ef maður er úr reykjavík þá er víst ekki hægt að tala við það þar sem hann þekkir engann úr reykjavík. Og hann stóð við það. Spurði mig hvaðan ég væri og hafði svo ekki meira að segja við mig. Ég varð því að reiða mig á aðra sessunauta mína. Sem voru ekki slæmir. Eggert nokkur sat við hliðina á mér, stórfínn maður, og svo Siv Friðleyfsdóttir á móti mér. Þau voru prýðis sessunautar. Siv keypti rauðvínsflösku og hellti alltaf jafnt í sitt og mitt glas. Ekki amalegt. Ég er ánægð með að hafa kosið hana fyrir fjórum árum. Verst að ég gat ekki kosið hana núna. Flott kona, gaman að tala við hana. Villtums svo reyndar í eitthvað smá teiti til systur hennar þar sem við skutluðum henni í grafarvoginn. Ákaflega skondið, en mjög skemmtilegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uhm, mér finnst lax æði.

Elín (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 16:28

2 Smámynd: Guðrún

Veit hvað þú meinar með svona fólk sem talar svona við mann og með svona kall sem segir að mar sé bara eikkað klikk að ímynda sér það :D hehe

Svo rataði ég einhverntíman í ráðherrabílinn hennar Sivjar og hún hafði skilið slæðuna sína eftir þar og það var rosalega góð lykt af henni, hehe... :D 

Guðrún , 18.11.2007 kl. 17:41

3 Smámynd: Dagný Guðmundsdóttir

ég á þessa bók sem þú varst að reyna að taka á bókasafninu ... reyndar á ensku en ég held að það skipti þig engu máli er það nokkuð?

þú mátt alveg fá hana lánaða! :)

Dagný Guðmundsdóttir, 21.11.2007 kl. 13:46

4 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

cuuuul, áfram dagný... ég er til í að fá hana lánaða hjá þér

Heiðdís Ragnarsdóttir, 21.11.2007 kl. 14:58

5 identicon

mmmm það er geggjað að grilla saltfisk!! NAMM! (í alvöru sko)

ingveldur (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband