27.5.2008 | 13:13
Vinna !
Í morgun hringdi í mig kona frá Egilsstöðum. Hún bauð mér vinnu. Það var gaman.
Ég er semsagt búin að fá vinnuna á leikskólanum. Verð sérkennslustjóri á leikskólanum Skógarlandi á Egilsstöðum frá og með 11.ágúst 2008. Áfram ég !! Og nú er ég hræddur Ég veit nefninlega ekki alveg hvað ég er að fara að gera !! Verð að kaupa mér bækur og tala við Elínu...er viss um að hún veit hvað ég er að fara að gera Svo verðum við nefninlega að ákveða dagsetningu fyrir sex and the city bíóferð. Allt að gerast allt að gerast.
Nú get ég farið að anda léttar. Komin með íbúð, vinnu og vini á Egilsstöðum. Nú vantar bara mömmu
Athugasemdir
Æði Til hamingju! Það er æðislegt að vinna á leikskóla
Þjóðarblómið, 27.5.2008 kl. 16:18
Frábært til hamingju með að vera komin með vinnu þarna fyrir austan. Nú er bara að fara á fullt að pakka.
Kveðja Sigurlaug
Sigurlaug (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 19:48
Þú átt eftir að rúlla þessu upp :)
Elín (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 20:43
Glæsilegt til hamingju!
Lutheran Dude, 28.5.2008 kl. 12:14
Það á ekki að segja frá því á netinu að maður viti ekki hvað maður er að fara að gera. Það gæti einhver lesið það....
Stefán Bogi Sveinsson, 28.5.2008 kl. 18:37
úps...en ef það stendur líka að maður ætli að kynna sér það rosa vel svo maður hafi hugmynd þegar maður mætir til vinnu ?? Og ætlar að mæta fyrr í vinnuna til að fá upplýsingar og kynna sér hvernig vinnan fer fram ??? Because I am !!!
Heiðdís Ragnarsdóttir, 29.5.2008 kl. 13:01
Já til hamingju! Við vorum áður komin með vinnu og vini, og nú er íbúðin líka komin hjá okkur. Þetta er rosalegt.
Þorgeir Arason, 2.6.2008 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.