3.9.2008 | 22:23
Stefán í bænum...like usual :þ
Ég kom heim áðan og sá sængina hans Stefáns í sófanum...ohhhh. Fór með pokann út kaupfélaginu inn í eldhús og sá að það var búið að vaska upp....jeeyyyy. Fór inn á klósett og var búin að sitja þar í litla stund þegar ég tek eftir því að Stefán virðist vera búinn að taka til á vaskaborðinu...og ekki bara taka til heldur virtist hann hafa tekið það sem átti að vera á vaskaborðinu. Það var allt komið til hliðar...þá leit ég aðeins lengra til vinstri og sá einhverja trékubba upp við vegginn !!! Hvað í ósköponum hefur maðurinn verið að gera....ég var semsagt búin að vera á salerninu í 2-3 mínútur þegar ég loksins tók eftir baðherbergisspeglinum sem ég er búin að bíða eftir frá því í júní sem by the way tekur nánast allan veginn !!! Athyglisgáfan í hámarki...
Og við vorum að fá innflutningsgjöf....voða flottur standlampi með halógen lýsingu frá systkinum Stefáns. Ég var að setja hann saman....greinilega ekki ikea lampi . En mér tókst að koma honum saman og ég fékk ljós á annan lampann. Ætla að athuga með nýja peru í hitt ljósið og sjá hvort að það gerist ekki eitthvað. Það sprakk allavega ekki þegar ég kveikti á græjunni . Set inn myndir af herlegheitunum þegar ég er komin með ljós á báða lampana (svona standlampi með einu stóru dimmer ljósi og svo svona litlum "les/prjón" lampa )
Kötturinn búinn að vera á flakki í viku....er að hugsa um að hringja í dýrahirðinn og athuga hvort hann hafi lennt hjá þeim...en kannski er hann bara að djamma !!! Who knows...
Athugasemdir
Haha....snillingur ertu Heiðdís! :) ótrúlegt hvað maður getur verið sofandi fyrir svona massívum breytingum! Duglegur maður sem þú átt samt að skella sér bara í þetta og skilja eftir svona glaðning handa þér þegar hann stingur af í bæinn! :)
Tinna Rós Steinsdóttir, 4.9.2008 kl. 13:48
hmm...ætti ég að leiðrétta þetta og láta vita að það hafi maður komið og sett upp spegilinn eða á ég að láta fólk halda að stefán hafi gert það sjálfur.... æi leyfi fólki bara að halda að hann hafi gert þetta sjálfur....
Heiðdís Ragnarsdóttir, 4.9.2008 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.