3.1.2008 | 09:01
dauðir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2007 | 13:57
Bæjó 2007
Núna er síðasti dagurinn á árinu. Mér finnst gaman þegar það kemur nýtt ár. Mér finnst gaman að fá nýja dagbók og nýja stundaskrá í ræktina og alls konar svoleiðis. Magnað að mér finnist gaman að nýju ári þegar ég þoli ekki breytingar. Ég ætla til dæmis að nota næsta árið til að venjast tilhugsuninni um að það sé möguleiki á því að ég verði ekki hjá fjölskyldunni minni næstu jól eða áramót. Það mun taka mig árið að venjast þeirri hugsun. Er búin að komast að því að það tekur mig svona u.þ.b. ár að venjast dramatískum breytingum á lífi mínu. Hmm...ég ætti kannski að hugsa um að fara á danska kúrinn eða eitthvað í ár og þá verð ég tilbúin að gera dramatískar breytingar á mataræðinu mínu !!! spurning. Ég er að halda í vonina um að nýja Hreyfing verði svo flott að mér finnist ég vera að dekra við sjálfa mig í hvert sinn sem ég mæti þangað. Eins gott að þetta verði samt eitthvað rediculously flott þar sem ég er að fara að borga slatta pening til þess að fá að mæta. Eins gott sko.....
Kústur er farinn að taka uppá því að stinga af í sólahring eða einn og hálfan. Mér finnst það ekki skemmtilegt.
Annars hlakka ég mikið til að 2008 byrji. Ég er nefninlega orðin 25 ára og mér finnst það rosalega flottur aldur. Ég held þess vegna að það sé rosalega gaman að vera 25 ára og ég verð það meiripartinn af 2008. Þess vegna hlýtur árið að vera skemmtilegt og eitthvað skemmtilegt að gerast. Kannski gerist eitthvað stórt. Kannski gerist eitthvað rosalega merkilegt. Vonandi
Áramótaheitið mitt síðustu árin hefur verið að gera nýja árið betra en það síðasta. Veit ekki hvort að að hafi tekist. En ég ætla að halda áfram með það ágæta heit. Og auðvitað að vera duglegri í ræktinni...sjálfgefið
Gleðilegt ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2007 | 22:16
Jólin á morgun
Ég er orðin hálf þrítug. Skil ekki af hverju 25 er hálf þrítugt. Held að öllum finnist meira vit í því að 25 sé hálf fimmtugt. En þetta las ég einu sinni í orðabók...ú eða í trivial...man það ekki alveg akkúrat núna. En afmælisdagurinn minn var alveg ljómandi fínn. Það komu miklu fleiri og fengu sér vöfflu heldur en ég hélt. Alveg yfir tuttugu Og ég fékk fullt af afmælisgjöfum. T.d. ipod, skóna sem ég er búin að ganga á síðasta mánuðinn, tösku, maskara, skál, fondú pott, málverk, vínflösku í snjókallabúning, spil, kaffisýróp, kertastjaka, eyrnalokka og eitthvað meira. Vöfflurnar mínar voru góðar þannig að ég held að allir hafi farið sáttir frá þessu vöfflukaffi mínu. Mér fannst allavega gaman.
Ég held að þetta sé í fyrsta sinn í nokkur ár sem ég fer ekki í bæinn á þorláksmessukvöld. Ég gleymdi að koma í réttu skónum og ég nenni ekki að fljúga á hausinn í bænum. Og ég er líka komin með hálsbólgu þannig að ég ætla ekki að hætta á meiri veikindi núna yfir jólin. Var veik síðustu jól á jóladagskvöld, annan og þriðja í jólum. Það var ekki gaman. Þannig að núna á bara að slappa af. Ég þreif aðeins heima áðan og sendi Stefán Boga í Bónus og í Garðheima. Í Garðheimum átti hann að kaupa kattasand. Hann kom heim með stórt jólaté. Jólatréð er það stórt að það tekur hálfa stofuna. Spennandi að koma heim á eftir og sjá hvort að Kústur sé búin að tæta eitthvað af trénu.
Ég er á leiðinni á Þorláksmessustund í Friðrikskapellu. Gleðileg Jól mínir dyggu lesendur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.12.2007 | 09:23
Afmæli
Ég á afmæli á morgun. Það getur verið erfitt að eiga afmæli svona stutt fyrir jólin. Aðallega ef maður ætlar að halda uppá það. Þegar ég var lítil var það ekkert mál þar sem ég bauð bara í afmæli sama dag og síðasti skóladagurinn var. Þá gátu yfirleitt allir komið, jafnvel þeir sem fóru eitthvað um jólin. Núna er það ekki svo einfallt. Allir farnir að vinna og vesen. En ég ætla að gera tilraun á morgun. Fyrst þessi góði dagur lenndir á laugardegi þá ætla ég að bjóða í vöfflukaffi. Mér finnst það tilvalið...allir vakna snemma og reyna að klára jólagjafakaupin í geðveikinni sem verður um helgina. Svo þegar fólk er að verða uppgefið þá skreppur það í vöfflur og kaffi hjá mér og mömmu (verður á Vesturgötunni). Vöfflur verða í boði á milli 15 og 18. Þegar fólk er búið að safna kröftum hjá mér þá er hægt að halda áfram eða fara í bæinn (það verður víst ekki gott veður á þorlák!, sel það ekki dýrara en ég keypti það!).
Ef þú þekkir mig og langar að koma...komdu þá :) Á vesturgötunni milli þrjú og sex
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.12.2007 | 19:04
Kertastjakinn!!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.12.2007 | 14:43
Kjöben
Ég er löngu komin heim. Ég hef einu sinni áður komið til Kaupmannahafnar. Ég var löngu búin að gleyma því hvað þetta var skemmtileg borg. Sá nú reyndar ekki mikið meira af henni en Strikið og næstu verslunargötur...en þær voru skemmtilegar. Verst að það er ekkert ódýrara að versla þar heldur en hérna heima. En það var nú öðruvísi úrval og H&M. Ég missti mig aðeins í þeirri búð...eitthvað sem ég hef ekki gert í mörg ár. Það var mjög skemmtilegt. Við borðuðum tvisvar á ágætis veitingarstöðum og skemmtum okkur hið besta með "gamla" fólkinu (þau voru öll á svipuðum aldri og foreldrar mínir).
Svo fórum við í annað jólaboð hjá þingflokki framsóknarflokksins á mánudaginn. Það var líka mjög gaman. Mér finnst við vera farin að vera með svo virðulegu fólki við Stefán Bogi. Fínum lögfræðingum og svo þingmönnum og fyrrverandi ráðherrum. Stefán sagði að við værum orðin svo hipp og kúl.... ég var nú ekki alveg sammála því að þetta væri beint hipp og kúl fólk. Meira svona virðulegt og kannski áhrifamikið. En pottþétt ekki hipp og kúl.
Núna er föstudagur og það er brjálað veður. Það er einn þjónusunotandi í húsinu. Hann er sá sem yrði sendur hinguð þó að húsið brynni ofan af okkur. Ferðaþjónustan hætti að keyra í morgun og allir voru sendir heim. Voða næs fyrir okkur Mig langar rosalega að fara heim og slappa af í stofunni með góðan mat, vídjó og teppi. En þá er ég búin að skrá mig á einhvað jólahlaðborð með Hulduhlíðinni á hótel sögu. Er eiginlega að vona að því sé frestað....nenni ekki út aftur
Keypti litla kertastjakann í flugvélinni heim. Sá stóri var ekki til. Á ekki pening til að kaupa þennan stóra. Vona bara að þeir haldi áfram að selja hann eftir jól.
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2007 | 19:14
Jólagjafir
Ég er alveg að fara að fara til útlanda ... er að byrja að hlakka til aftur, er búin að vera að geyma það í rúman mánuð. Ég er ekki byrjuð að kaupa jólagjafir. Skelli mér í það í útlandinu eða þegar ég kem heim. Er nú komin með einhverjar hugmyndir. Ég fer alveg að verða stressuð yfir þessu jólagjafaleysi !!
En ég er búin að gera jólahreingerningarnar. Þær voru á sunnudaginn. Núna þarf bara rétt að strjúka af og ryksuga og þá mega jólin koma . Eitt jólahlaðborð búið, tvö eftir. Annað í Kaupmannahöfn, hitt ókeypis
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.11.2007 | 19:15
Mig langar
Mig langar í svona. Þetta eru bara fallegustu kertastjakar sem ég hef séð í langan langan tíma. Ég sé fyrir mér stemningu í að taka þennan aðventukrans upp fyrir hver jól og stilla honum fallega upp einhverstaðar, kannski skreyta með einhverju smá, en ekki mikið.
Þessi er reyndar silfur...þessi sem ég er að skoða fæst í líf og list og er gylltur...svoooo fallega gylltur. Kostar litlar 8900 krónur !! Vaaaaáááá mig langar í.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.11.2007 | 21:12
Hver man eftir vöfflum ??
Ég fór á námskeið í vinunni í dag. Námskeiðið var um hegðunarvandamál. Það fjallaði mikið um hvað hegðunarvandi er og að mestu um hvernig starfsfólk er orsök hegðunarvandans. Í einum hluta námskeiðisins var verið að fjalla um sjálfsskaða, hvað hann er og hver er orsök hans. Það er til dæmis til heilkenni þar sem sjálfsskaði er eitt af greiningarviðmiðum. Ég lærði nú ekki mikið nýtt um sjálfsskaða á þessu námskeiði en ég lærði það að ég stunda sjálfsskaða í töluverðu magni. Ein glæran var um tölfræði sjálfsskaða hjá fólki með Tourette. Hmm, ég fór að hugsa og fattaði að ég geri þetta soldið mikið. Kannski ekki mjög alvarlegt en er jú til staðar. Ég lem sjálfa mig í síðuna reglulega yfir daginn og ég braka í flest öllum liðum, sérstaklega í háls, hrygg og fingrum. Það er kannski ekki hræðilega slæmt en það er pottþétt ekki gott fyrir liðina! Ég veit ekki hvað það er en eitthvað af þessum kippum mínum fara líka mjög illa með mjóbakið á mér. Er alltaf mjög stíf og aum þar. En það hefur kannski meira með hreyfingarlesi og slæma líkamsstöðu að gera.
Ekki það að ég hafi miklar áhyggjur af þessari sjálfsskaðandi hegðun. En eitthvað til að hugsa um !
(allaf jafn gaman að heyra um sjálfan sig í fyrirlestrum !!)
Fór í vinnupartý á föstudaginn. Það var eighties þema. Ég var með vöfflur í hárinu. Ég var rosa sæt, tímdi ekki að þvo mér um hárið alla helgina mér fannst ég svo krúttleg. Það var rosa gaman. Fór svo á Ölstofuna með Stefáni Boga og vini hans. Stefán var svo upptekinn að spjalla við vin sinn að hann tók ekkert eftir því þegar það kom strákur að spjalla við mig. Ég skal viðurkenna það að þetta er í fyrsta sinn sem kk kemur og spjallar við mig á næturlífinu og ég fæ ekki aula eða drykkjuhroll við að sjá viðkomandi. Fannst það samt hálf kjánalegt þegar ég mundi eftir vöfflunum í hárinu mínu...en ef það eru vöfflur sem kk vilja þá er aldrei að vita nema maður skarti þeim oftar confidence booster dauðans
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2007 | 13:15
Simmsalabimm
Þrátt fyrir skrautlegann árangur við eldun saltfisks í síðustu viku þá held ég að ég sé að sjóast í fiski eldamennsku með vinnu minni á sambýlinu. Ég vinn nefninlega oft á fimmtudögum og það er alltaf einhver fiskur í matinn á fimmtudögum. Í þessari viku var ég með ofnbakaðann lax með sætum kartöflum og sallati. Ég sem borða nánast alldrei lax. Það tókst mun betur en þessi lúmski saltfiskur þarna um daginn.
Fór á bókasafnið í vikunni. Fannst ég rosalega heppin þegar ég náði í nýju bókina eftir manninn sem skrifaði flugdrekahlauparann. Ég er svo heiðarleg að ég fer strax og spyr hvort að bókin sé nokkuð frátekin. Konan tékkar og segir að hún sé laus. Ég er þá í ca. 10-15 mínútur í viðbót að leita mér að fleiri bókum. Þegar ég ætla svo að taka bækurnar þá er þessi bók tekin af mér af því að hún var frátekin. Ég spyr hvort að það hafi gerst á þessum mínútum sem ég var á staðnum með bókina í hendinni. Sú kona gat nú ekki séð það í tölvunni hjá sér. Segir svo við mig "þetta er sko nýja bókin eftir manninn sem skrifaði flugdrekahlauparann !!!" Stefán Bogi segir að ég sé rugluð að halda þessu fram og að þetta sé bara ímyndun í hausnum á mér EN ég get svo svarið það konan sagði þetta við mig eins og ég væri hálfviti... auðvitað vissi ég hvaða bók þetta var og að hún væri vinsæl...þess vegna tékkaði ég á henni um leið og ég sá hana... leiðindar $/&%#$ kona. Kannski er ég bara bjáni en svona framkoma fólks við ókunnuga finnst mér viðbjóðslega pirrandi. Þetta hefur svo mikil áhrif á mig. Veit að maður á ekki að láta svona hafa áhrif á sig en ég bara verð svo pirruð. Aðallega á fólkinu að leyfa sér að tala svona við annað fólk.
Annað dæmi þar sem Stefán Bogi sagði að ég væri rugluð (þó að hann hafi ekki verið á staðnum í hvorugu dæmanna). Ég var á bensínstöð þar sem var verið að bjóða upp á dælulykil. Ég er með lykil hjá atlantsolíu og langar ekkert í annan. Þegar ég vil ekki hlusta á tilboð mannsins og segist vera með annan þá segir hann við mig "jah...þú veist ekki hverju þú ert að missa af". Og það er ekki hvað hann sagði, heldur hvernig hann sagði það...eins og ég væri fæðingarhálfviti fyrir að láta ekki glepjast af tilboðinu hans. Þoli ekki þegar ókunnugu fólki tekst að láta mér líða þannig í smá stund...og þoli það ekki að fólk skuli leyfa sér að tala svona við annað fólk!
Ok pirringspistli dagsins lokið. Lét Stefán Boga plata mig í gær á eitthvað skemmtikvöld hjá framsóknarmönnum í mosfellsbæ. Bjóst nú ekki við því að skemmta mér neitt allt of vel, en það var bara mjög gaman. Var með Stefán öðrum megin við mig. Hann talaði reyndar mjög lítið við mig þar sem eldri maður sat á móti honum en sá maður bjó fyrir austan í einhver ár og þar af leiðandi gátu þeir talað saman allt kvöldið. Sá maður spyr fólk alltaf hvaðan það sé. Ef maður er úr reykjavík þá er víst ekki hægt að tala við það þar sem hann þekkir engann úr reykjavík. Og hann stóð við það. Spurði mig hvaðan ég væri og hafði svo ekki meira að segja við mig. Ég varð því að reiða mig á aðra sessunauta mína. Sem voru ekki slæmir. Eggert nokkur sat við hliðina á mér, stórfínn maður, og svo Siv Friðleyfsdóttir á móti mér. Þau voru prýðis sessunautar. Siv keypti rauðvínsflösku og hellti alltaf jafnt í sitt og mitt glas. Ekki amalegt. Ég er ánægð með að hafa kosið hana fyrir fjórum árum. Verst að ég gat ekki kosið hana núna. Flott kona, gaman að tala við hana. Villtums svo reyndar í eitthvað smá teiti til systur hennar þar sem við skutluðum henni í grafarvoginn. Ákaflega skondið, en mjög skemmtilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)