Löngunin fundin !

Ég hef ekki mætt í ræktina síðan í janúar. Þá fékk ég svo miklar blöðrur á fæturnar að ég ákvað að taka mér frí í viku.  Þá fékk ég kvef, var veik, fékk mér kött, nennti ekki osfrv osfrv..... Núna síðustu vikur er ég búin að vera á leiðinni en einhvernvegin þá bara langar mig ekki. Oft þá nenni ég ekki að fara en fer samt af því að mig langar til þess. Núna undanfarið hef ég hvorki nennt né langað og þar af leiðandi ekkert farið. Hef þó skellt mér í góða göngutúra og sund síðustu tvær vikurnar, svona til að hita upp.

Í gær eftir vinnu ákvað ég eins og svo oft áður að fara ekki í ræktina. Gerði eiginlega öfugt, fór í kringluna og fékk mér kaffi og eplaköku. Á kaffihúsinu fékk ég svo vitrun Tounge. Kakan var nefninlega lin og ógeðsleg og kaffið allt of sætt. Og fyrir þennan viðbjóð þurfti ég að borga rúmar 800 krónur. Á leiðinni heim langaði mig til að gera eitthvað. Nennti samt ekki í sund né í gönguferð. Datt þá í hug að kíkja í ræktina. Ekki kannski til að púla mikið en allavega láta sjá mig, rifja upp hvernig staðurinn leit út og svoleiðis. Og haldiði ekki að ég hafi fundið löngunina aftur!! Hún var ekki á kaffihúsunum eða heima hjá mér eins og ég var búin að telja mér trú um. Hún var í ræktinni allan tímann. Engin furða að ég fann hana ekki. Á meðan ég var þarna var BodyJam tími í gangi. Það er svona dansi þolfimi tími. Og vá hvað ég öfundaði þá sem voru í tímanum. Þau voru að dansa við Ruslönu eurovision lagið Wild dances. Hólí smólí hvað þetta leit út fyrir að vera skemmtilegt. Ég planaði þá að mæta í næsta svona tíma en nei nei. Næsti tími er á þriðjudaginn en þá er starfsmannafundur hjá mér í vinnunni og næsta fimmtudag er svo Sumardagurinn fyrsti. Þannig að það er langt þangað til ég fer að gera mig að fífli í dansitíma!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband