3.6.2007 | 23:13
Nothin
Jæja, þá er ég loksins orðin góð í maganum. Eina jákvæða við svona veikindi eru auðvitað að maður þyngist ekki á meðan ekki það ég er búin að vera voða dugleg að bæta þessu á mig núna um helgina !!! Núna á morgun hefst svo sveltið með ferðum í ræktina og skyr boost í kvöldmatinn .
Ég er svo að byrja í nýrri vinnu á þriðjudaginn. Reyndar ekki aðal vinna, bara auka vinna. Ætla að taka að mér nokkrar vaktir á sambýli í sumar, reyna að safna smá peningum til að geta haft það extra nice í sumarfríinu mínu sem og borga fyrir nice sumarfríið mitt. Það er nefninlega dýrt að fara í lúxus gönguferð um austurland ! Svo þarf maður víst að safna sér peningum ef mann langar að eiga sitt eigið húsnæði
Við Stefán Bogi fórum á pirates of the caribbean á föstudaginn. Hún var ágæt en samt ekki eins góð og hinar tvær fannst mér. Eitthvað sem fór í pirrurnar á mér í sambandi við hana. Captain Jack Sparrow samt alltaf jafn heillandi.
Hef ekkert sérstakt meira að segja, bara.... gleðilegt sumar !!! Ú, ég fer í sumarfrí eftir þrjár vikur, hlakka geðveikt til
Athugasemdir
hmm spurning. fóruð þið út áður en credits var búið? því endirinn er EFTIR credits..... :)
Dagný Guðmundsdóttir, 4.6.2007 kl. 07:52
ooooooooohhhhhhhhhhhhhhhh fattaði það ekki, missti af því. Villtu spoilera því !!!
Heiðdís Ragnarsdóttir, 4.6.2007 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.