Nothin

Jæja, þá er ég loksins orðin góð í maganum. Eina jákvæða við svona veikindi eru auðvitað að maður þyngist ekki á meðan Wink ekki það ég er búin að vera voða dugleg að bæta þessu á mig núna um helgina !!! Núna á morgun hefst svo sveltið með ferðum í ræktina og skyr boost í kvöldmatinn Tounge.

Ég er svo að byrja í nýrri vinnu á þriðjudaginn. Reyndar ekki aðal vinna, bara auka vinna. Ætla að taka að mér nokkrar vaktir á sambýli í sumar, reyna að safna smá peningum til að geta haft það extra nice í sumarfríinu mínu sem og borga fyrir nice sumarfríið mitt. Það er nefninlega dýrt að fara í lúxus gönguferð um austurland ! Svo þarf maður víst að safna sér peningum ef mann langar að eiga sitt eigið húsnæði Errm

Við Stefán Bogi fórum á pirates of the caribbean á föstudaginn. Hún var ágæt en samt ekki eins góð og hinar tvær fannst mér. Eitthvað sem fór í pirrurnar á mér í sambandi við hana. Captain Jack Sparrow samt alltaf jafn heillandi.

Hef ekkert sérstakt meira að segja, bara.... gleðilegt sumar !!! Ú, ég fer í sumarfrí eftir þrjár vikur, hlakka geðveikt til Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagný Guðmundsdóttir

hmm spurning. fóruð þið út áður en credits var búið? því endirinn er EFTIR credits..... :)

Dagný Guðmundsdóttir, 4.6.2007 kl. 07:52

2 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

ooooooooohhhhhhhhhhhhhhhh fattaði það ekki, missti af því.  Villtu spoilera því !!!

Heiðdís Ragnarsdóttir, 4.6.2007 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband