23.7.2008 | 23:40
Bíó and alone again !
Ég er komin í bæinn og þá fara allir aðrir úr bænum. Mamma, pabbi og Heiða eru að fara á Landsmót skáta svo ég verð ein í húsinu. Hugrún er reyndar við hliðina á mér en hún er að vinna á dagin. Af hverju er fólk ekki í sumarfríi til að hitt mig. Skrítið
Fór á mamma mia í kvöld. Skemmtileg blanda af aulahrolli og skemmtun. Magnað hvað bíóin geta haft hljóðið á hasarmyndum hátt stillt en söngvamyndir eru einhverstaðar í medium. Þegar ég fer á söngleik þá vil ég hafa tónlistina svolítið hátt stillta svo maður geti þess vegna raulað með án þess að allur salurinn heyri í manni. Þetta hefur pirrað mig á phanton of the opera, sweeney todd og núna á mamma mia. Ég myndi fara á power sýningu á mamma mia ef hún væri í boði !!!
Pierce Brosnan getur alveg sungið. En hann getur ekki mæmað/leikið sig syngjandi...er svo skrítinn á svipinn alltaf þegar hann syngur !! Meryl Streep hefur einhvernvegin aldrei heillað mig sem leikkona en eftir að hafa séð hana í The Devil wears Prada og núna syngjandi í Mamma Mia þá er ég að taka hana í sátt. Sá hana ekki fyrir mér syngjandi á grískri eyju en hún "negldi" þetta bara. Góð skemmtun um leið og maður losar sig við aulahrollin og bara skemmtir sér (en hljóðið má vera hærra !!)
Athugasemdir
Vá en skrýtið, var líka á Mama mia á 22.30 sýningunni og hljóðið var mjög hátt stillt. Frábær mynd mar.
Guðrún , 24.7.2008 kl. 01:13
Ég er í fríi! Og er ekkert að gera :)
Þjóðarblómið, 24.7.2008 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.