Hot me

Ég er greinilega mjög falleg í Reykjavík. Ég hef verið að þvælast í bænum í dag og á miðvikudaginn. Á miðvikudaginn var sagt við mig á götuhorni "þú ert flott....þú ert flott....áttu pening...þú ert flott". Nei þetta var ekki rosalega fallegur handboltakappi eða rokkari. Ekki einu sinni myndarlegur túristi. Nei þetta var einn af bæjarins bestu...þ.e. róni/útigangsmaður/ógæfumaður/alkoholist.

Í dag var ég semsagt aftur í bænum (bæði skiptin um miðjan dag). Var að koma út úr máli og mennignu þegar maður sem gengur fyrir aftan mig lætur mig vita að ég sé falleg. Segir það þrisvar og spyr mig svo hvort að ég sé ekki að vestan. Ég þakkaði fyrir mig, sagðist ekki kannast við það að vera að vestan og labbaði svo í hina áttina. Again, ekki læknir, arkitekt eða lögfræðingur heldur einn af bæjarins verstu. Verður að viðurkennast að þeir hafa afskaplega góðan smekk, en ég hefði það alveg ágætt án þeirra. Saknaði allt í einu Guðmunds í Byrginu þar sem menn áttu örugglega heima fyrir ári síðan!

Brúðkaup á morgun. Gaman gaman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ

Gaman að geta lesið svona margar færslur þegar maður kemur heim eftir smá frí :) En ég var að skoða myndirnar. Gaman að geta skoðað íbúðina ykkar :) Hún lítur vel út.

Elín (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband