18.11.2008 | 13:14
Að púkast heima !!
Ég er heima hjá mér að lasinpúkast aðeins. Ekkert alvarlegt svosem, er bara komin með ansi slæman hósta. Ég vaknaði í morgun, ákvað að fara ekki í vinnuna, hélt áfram að sofa og vaknaði klukkan tólf. Steinsvaf alveg. Og núna er ég að bíða eftir því að Stefán komi heim með subway handa mér. Gaman að eiga svona manna sem bíðst til að koma með mat handa mér....thats love Hann vakanaði nefninlega við hóstann minn í nótt....og hann vaknar aldrei við neitt....ekki einu sinni leiðinlegu háværu vekjaraklukkuna mína. Eða þegar ég tek myndir af honum sofandi....
Kústi fannst fátt betra en að sofa í rúminu okkar
Sorry Stefán Bogi svona myndir fara á netið þegar ég er að lasinpúkast heima!!!
Í gær var dagur íslenskrar tungu og í tilefni af því stóðu leikskólakennarar á á héraði (og seyðisfirði reyndar líka) fyrir smá uppákomu í safnahúsinu. Við fórum í gegnum minjasafnið með leiðsögn, fengum mat frá gistiheimilinu á Egilsstöðum og svo kom eldri kona (leynigesturinn) og sagði okkur draugasögu. Hún verður til þess að ég keyri aldrei yfir Fjarðarheiðina ein eftir myrkur. Gerði það einu sinni í sumar (var reyndar bjart) í þoku og ég skildi alveg hvernig álfa og draugasögur verða í til. Jájá.
Á meðan ég var að hlusta á draugasögur var Stefán Bogi með áfallahjálp fyrir framsóknarmenn í framsóknarsalnum hérna á Egilsstöðum. Tilefnið var þátttaka Guðna Ágústssonar í fíflaskrúðgöngunni frægu. Þá eruð þið komin með mína skoðun á því máli
Ég er byrjuð að föndra jólakort og mér finnst þau geðveikt krúttaraleg og skemmtileg. Nú verðið þið bara að bíða og vona að þið fáið eitt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 23:58
Me!
Ég fór á uppboð á þriðjudaginn. Það var verið að bjóða upp alls konar dót af minjasafninu frá sýningunni í sumar. Sýningin var tileinkuð íslensku sauðkindinni og það var verið að bjóða upp myndir, gærur , tálgaðar kindur og lampa og eitthvað. Ég var mjög spennt og ekki spennt þar sem ég ákvað í sumar að ég vildi fá svona kindamyndir uppá vegg í gesta herberginu mínu. Stefán Bogi átti að ganga í málið þar sem hann þekkir ljósmyndarann. Það gerðist ekkert í þeim málum þannig að ég þurfti að tölta á uppboð þetta þriðjudagskvöld. Mér fannst það ekki sniðugt þar sem ég var búin að velja mér myndir og var dauðhrædd um að einhver illgjarn kindamyndakaupamaður myndi stela af mér myndunum mínum. Það var óþarfa ótti þar sem mætingin var ekkert sérstaklega mikil. Ég fékk sem sagt myndirnar sem mig langaði í, ódýrari en ef ég hefði keypt þær í sumar....yesssss. Og núna eru þær komnar uppá vegg. Svo fínar. Núna heitir þetta herbergi ekki geymslan, aukaherbergi, gestaherbergi eða what ever. Núna er þetta bara kindaherbergið. Það er hægt að óska eftir gistingu í kindaherberginu .... ef einhver þorir að sofa undir vökulum augum íslensku sauðkindarinnar.....
Mynd nr 1. Þetta eru ekkert sérstaklega góðar myndir af myndunum af því að ég þurfti að taka flassið af til að þær sæjust. Þið þurfið bara að koma í heimsókn til að sjá þær betur
Þessi er svo sæt.....
Þessi er svo flott af því að það er svo mikið grænt í henni...."tónar vel" við appelsínugula sófann !!!
Á veggnum
!?!?!?!?
Bloggar | Breytt 14.11.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.11.2008 | 15:08
framhald
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2008 | 23:05
Facts
Fact : Ég er trúlofuð.
Fact: Mig langar til að gifta mig
Fact: Ég þekki mikið af fólki sem mér þykir vænt um sem mig langar til að bjóða (og Stefán þekkir fleiri!)
Fact: Ég hef ekki efni á því að bjóða öllu þessu fólki í brúðkaupið mitt (ég er ekki að tala um 250 manns, bara svona týpískt íslenskt brúðkaup með 120-150 manns)
Fact: Ég mun ekki hafa efni á því að halda veislu á næstu árum.
Fact: Mig langar meira að gifta mig og halda skemmtilega veislu heldur en að fá gjafir (þarna kom ég sjálfri mér á óvart !!!)
Rétt upp hönd sem myndi mæta í brúðkaup þar sem brúðhjónin myndu biðja fólk um að sleppa gjöfum en hjálpa brúðhjónunum frekar að halda veislu með að "borga sig inn" kannski 3-5000 kr á mann....svona fyrir matnum ???
Shitt mamma og tengdó fá örugglega flog yfir dónaskapnum í mér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.11.2008 | 09:25
Tíkin
Jæja, þá er Bjarni kominn í fíflaskrúðgönguna og bloggheimar loga af færslum um hann. Loksins eitthvað annað að tala um en seðlabankastjóri.
Mér leiðist pólitík. Ég skil ekki hvernig fólk nennir að vera í þessum sandkassaleik. Orðið sandkassaleikur er samt frekar móðgandi orð, ekki fyrir stjórnmálamenn heldur fyrir börnin sem leika sér í sandkassanum. Sá leikur er mun heiðarlegri og betri en pólitíkin....þó að einhver sé laminn eða fái sand í augað !!!
Ég hef hitt mikið af framsóknarmönnum síðustu tvö árin. Og mér hefur líkað mjög vel við þetta fólk og finnst hugmyndir þeirra að mörgu leiti mjög góðar. Fullt af góðu fólki með góðar hugmyndir. Svo eru fífl inni á milli. Og þannig er það í öllum flokkum. Það er gott fólk og það eru fífl. En af hverju þurfa framsóknarmenn alltaf að fara í fíflaskrúðgöngu og glenna sig fyrir framan fjölmiðlana ?? Það skil ég ekki. Greinilegt að það þarf að halda pólitík 101 fyrir framsóknarmenn þar sem þeim er kennt að ráðast á aðra flokka en ekki sjálfa sig og ef þeir ráðast á hvern annan, gera það fyrir utan fjölmiðla. Allir aðrir flokkar virðast hafa náð þessu .... af hverju ekki þeir ?
Og fyrst ég er byrjuð ! Mér leiðist þegar fólk talar um að það eigi að lækka laun alþingismanna og reka aðstoðarmenn. Núna þegar þingmennirnir eru að vinna 24/7, svo mikið að ég efast um að þeir sofi eða hitti famelíurnar sínar, þá á að lækka launin og reka aðstoðina sem þeir fá. Ég skal segja ykkur það að það þyrfti að borga mér töluvert meiri peninga en alþingismenn í dag fá til að sinna þessu starfi !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2008 | 13:02
Salt
Ég saknaði Reykjavíkur í morgun !
Af hverju ?
Af því að reykjavíkurborg virkar þannig að ef það er spáð frosti þá er búið að salta og sanda allar götur og göngustíga á no time. Svo kemur frostið ekki en þegar það kemur þá er saltað og sandað aftur !
Ég flaug semsagt á hausinn í morgun. Þegar ég labba í leikskólann þá fer ég niður göngustíg í hverfinu mínu. Helmingurinn af leiðinni er brekkar og helmingurinn af brekkunni er óupplýst. Í morgun var svo svona lúmsk ósýnileg hálka. Ég var að passa mig en það virkaði greinilega ekki nógu vel. Fer meira að segja alltaf í gönguskónum mínum til að reyna að hafa sem mest grip. Hvað ég blótaði bæjarstjórninni í huganum þar sem ég sat á rassinum í myrkrinu og hálkunni. Var að hugsa um hvort ég ætti að hringja eða senda bréf til að kvarta. Mundi svo að það er allt að fara til fjandans á bænum þar sem stæðsta fyrirtæki bæjarins var að fara á hausinn. Reikna ekki með að það yrði hlustað mikið á nýbúa með marblett á rassinum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.11.2008 | 19:34
oooooOOOOOÓÓÓ Höttur !
Jæja. Fyrsta blakmótið afstaðið. Við (Höttur B) spiluðum einn leik á föstudaginn og þrjá í dag, laugardag. Okkur tókst að tapa fyrsta leiknum sem var á föstudag. Enda ekkert sérstaklega skrítið þar sem við vorum að spila í fyrsta sinn saman og við mættum erfiðasta liðinu fyrst. Það var B lið Hugins frá Seyðisfirði. Mér leist nú ekkert á þetta alveg fyrst þar sem stelpurnar voru eitthvað svo professional þarn fyrst (ég byrjaði alltaf útaf). Langaði eiginlega ekkert inná ! Scary. En svo fór ég inná og það var allt í lagi.
Í dag spiluðum við svo þrjá leiki og við unnum þá alla.... Vey. Ógeðslega góðar. Og það var ógisslega gaman. Læt nú alveg sjá mig aftur á næstu æfingu og næsta móti. Erfði meira að segja hnéhlífar þannig að ég var rosa töff á vellinum. Og ég rifjaði upp eitt handbolta/fótbolta hvatningarhróp sem ég gaulaði einu sinni og hætti svo þar sem ég truflaði einbeitingu liðsins. Held að þær hafi ekki búist við þessu !!! En hrópið góða er "aaaaááááfram Höttur, sýnið hvað þið getið með boltann yfir netið !!!"
Núna er ég ein heima að slappa af. Stefán einhverstaðar á Hallormsstað að þjálfa morfís lið ME. Er byrjuð að þvo þvott og svo verður tekið til og þrifið á morgun. Ekki veitir af !
Er ekki annars bara gaman að vera til ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2008 | 10:01
Jólafærsla !!
Ég fór í prjónaklúbb í gær. Nokkrar kellur (já ég var lang yngst !!) ákváðu að hittast og prjóna. Ég held að orðið saumaklúbbur eigi ekki lengur við konur sem hittast og dunda sér við handavinnu. Núna er saumaklúbbur hópur af vinkonum sem hittast til að borða og spjalla. Þannig að ef að maður ætlar að hafa hitting sem gefur til kynna að einhver handavinna sé unnin þá verður það að heita eitthvað annað. Prjónaklúbbur varð fyrir valinu. Þó að reyndar nafnið kreppuklúbbur hafi komið upp. En mér finnst orðinu kreppa vera komið fyrir á allt of mörgum stöðum þessar vikurnar þannig að ég neita að taka þátt í einhverju sem er kallað kreppu eitthvað.
Ég var að hugsa hvort að ég gæti prjónað einhverjar jólagjafir í ár...svona t.d. til að spara (ekki það að garn sé ódýrt !!). Stefán gefur börnum systkina sinna alltaf bækur þannig að við spörum lítið á því að gefa þeim líka eitthvað prjónað. Systur mínar (allavega önnur) prjónar bara sjálf og örugglega betur en ég svo það er ekki spennandi kostur. Verð að láta mér detta einhver í hug til að gefa prjónavörur. Ég ætla ekki að segja hvað ég var að prjóna svona ef mér skildi detta í hug að gefa einhverjum það í jólagjöf
Ég fór í Húsasmiðjuna síðasta föstudag. Ætlaði bara að kaupa millistykki. En þá gerðist svolítið....jólin voru bara mætt í blómasmiðjuna og húsaval. Ég eyddi örugglega 45 mínútum í það að skoða jólaskreytingar og dót. Ah...ég var næstum því farin heim að hlusta á jólalög. Fattaði svo að ég hef ekkert hlustað á jólalög þetta árið. Venjulega tek ég mér svona viku um mitt ár til að hlusta á jólalög í bílnum og svo fá þau aftur pásu ! Ég bara fékk ekki þessa löngun núna í ár ! Skrítið. Allavega. Ég fór heim og setti upp aðventukransinn minn. Hann er nú svosem ekkert jólalegur þegar hann stendur bara svona einn. Þetta er georg jensen kertakrans sem ég fékk í afmælisgjöf frá afa og ömmu í fyrra. Hann er búinn að bíða uppi í skáp allt árið og ég bara gat ekki hugsað mér að hafa hann bara uppi í þrjár vikur (af því að þá fer ég suður og sé hann ekki lengur). Þannig að ég setti hann bara upp um helgina. ohhh hann er svo fallegur ..... alveg skelfilegt að vera svona hrifinn af "veraldlegum hlutum" . Elska elska elska jólin !
Allir á héraði rosa ánægðir með Stefán Boga í útsvarinu. Flottur !!! Meira að segja þegar hann dansaði .... Það sem kom mér samt mest á óvart var að hann virtist vita hvernig þvottavél virkar. Hef ekki orðið svo mikið vör við það heima
Blakmót um helgina.... ó mæ !!
Smá leikskólahúmor. Það var brokkolí í matinn um daginn.
"má ég fá meira trampolín ?"
"má ég borða blómin"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2008 | 14:30
Áfram Fljótsdalshérað !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.10.2008 | 14:05
Blak
Vá tvær færslur á dag...það er bara ekkert annað !!!
Áðan var ég spurð að því hvort að ég ætlaði ekki að taka þátt í blakmóti á seyðisfirði eftir rúma viku. Ég er ferlega montin af því að
1. Ég hélt að ég væri of ung fyrir þetta mót. Svo kemur bara í ljós að þetta er ekki öldungamót svo ég má vera með.
2. Mér datt ekki í hug að bjóða mig fram þar sem ég er ekkert voðalega góð (ennþá) og ætlaði ekki að íþyngja nokkru liði með nærveru minni.
En svona til að segja aðeins frá blak getu minni þá hef ég átt í einhverjum vandræðum með að smassa !! (enda netið gert fyrir ameríska körfuboltamenn en ekki venjulega konu eins og mig (OMG ég sagði konu en ekki steplu!!)). Þegar maður smassar þá þarf maður að
1.koma hlaupandi
2.hoppa á réttum stað og á réttum tíma og í rétta átt (upp en ekki áfram á netið)
3. hitta boltann
4. láta boltann lenda inni á vellinum, réttum megin við netið.
Ég var aðeins farin að ná þessu þegar mér var bent á það að ég þyrfti að hoppa jafnfætis en ekki á öðrum fæti eins og ég hef gert (og flestir eru vanir að gera). Þá voru góð ráð dýr. Ég þurfti nánast að byrja upp á nýtt. Það er ekkert smá erfitt að koma hlaupandi og hoppa svo allt í einu jafnfætis. Mér leið eins og að ég væri að læra að labba upp á nýtt. En með þolinmæði og þrjósku fóru fæturnir á mér að færast í rétta átt. Í gær smassaði ég 2-3 sinnum ágætlega úr jafnfætis hoppi og var bara nokkuð ánægð með mig.
Nema hvað....Stefán Bogi þarf endilega að deila því með mér hvað ég sé fyndin þegar ég hoppa !!! Hann gat varla talað hann hló svo mikið á leiðinni heim í bílnum. Ég fer einhvernvegin út með fæturnar !!! What ???? Hvurslags eiginlega er þetta ????
Þetta þýðir það að á næstu æfingu mun ég ekki aðeins hugsa um allt sem ég skrifaði áðan frá 1-4 heldur líka hvert fæturnir á mér fara eftir að þeir eru komnir í loftið. HVER PÆLIR Í ÞVÍ ?? Hann sagði reyndar að ein vön hoppaði svona líka, en hætti hann að hlæja að mér ?? NEI.
Man allt í einu af hverju strákar voru leiðinlegir þegar maður var 10-13 ára. !!!
En að öðru. Afi minn átti afmæli í gær. Hann varð 77 ára gamall. Mér finnst eins og það hafi gerst í gær að hann lýsti því yfir að hann væri orðinn löggillt gamalmenni. Núna er hann ári eldri en amma í einn mánuð. Einhvertíman fannst honum það voða gaman. Allavega. Til hamingju með afmælið afi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)