10.1.2009 | 19:54
Það er kominn janúar !
Þá er tveggja mínútna frægð minni lokið. "Ég" var víst í fréttablaðinu líka þar sem fyrirsögnin var Heiðdís hætti við að fá sér ís. Það er náttúrulega fréttnæmt þegar Heiðdís hættir við að fá sér ís þegar hún er á annað borð búin að ákveða að fá sér einn. Þetta var tveggja mínútna frægðin...bíðiði bara þangað til fimnmtán mínútna frægðin kemur .... það verður eitthvað svakalegt
Ég þarf alltaf að hugsa geðveikt mikið þegar ég skrifa mínúta. Ég er aldrei viss hvort það er mínúta eða mínóta. Held að ég komist yfirleitt að því að rétt sé að skrifa mínúta. Endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. Kannski þess vegna sem fólk er farið að segja míndur þegar það er að tala....veit ekki hvort að það sé ó eða ú í þessu blessaða orði...eða er það kannski bara ég ???
Jæja. Þá er komið að því. Ég er orðin ein af þeim. Ég er orðin ein af fólkinu sem ég þoldi ekki í fyrra (og á reyndar ennþá erfitt með að þola!!). Ég skráði mig á BootCamp námskeið á Egilsstöðum. Það byrjar strax á mánudaginn....þ.e. ef það er næg þátttaka. Ég veit um þrjá en það er víst ekki nóg. Þurfa að vera tuttugu. Vona að það náist fyrst að ég er á annað borð búin að skrá mig. Byrjuð að kvíða fyrir og hlakka til. Er búin að gefa Stefáni Boga leyfi til að skjóta mig ef ég fer að tala um súperfroska og helvítisarmbeygjur o.s.frv. Veit að hann stendur við það þessi elska.
Ég er að prjóna lopapeysu. Hún á að vera á mig. Ég fann ekki uppskrift sem eftir mínum hugmyndum þannig að ég er að "skálda" á mig peysu. Kannski ekki alveg skálda uppskrift....meira byggja á nokkrum uppskriftum, setja þær saman eins og mér hentar. Ef hún kemur vel út mun ég setja mynd hérna. Ef ekki þá fáið þið ekki að heyra meira af þessari tilraunastarfsemi
Ég fékk Mamma mia lánaða og tók hana með mér austur. Stefán var ekki alveg til í að horfa á hana í gær....vildi frekar vera í tölvunni sinni. Þá spilaði ég hana bara í tölvunni hjá mér. Og ég náði honum....haha, hann elskar söngleiki eins og ég Held samt að það hafi frekar verið tónlistin sem heillaði frekar en söguþráðurinn sjálfur....sem er kannski ekki upp á svo marga fiska...
Jæja.....þarf að fara að gera mig tilbúna. Er að fara í einhverja nýársgleði hjá framsókn hérna á héraði. Ætla ekki í neinu grænu í þetta skiptið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2009 | 10:19
Jæks
Minns ekki bara virkur neytandi heldur líka komin á netmiðlana !!!!
http://www.visir.is/article/20090108/FRETTIR01/289190901/1215
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2009 | 12:32
Okur :) minns bara orðinn virkur neytandi ;)
I am one of them now. Sendi póst á okursíðu dr.Gunna. Þetta er í annað sinn sem ég sendi póst á hann. Í fyrra skiptið var það til að kvarta undan lélegum dómi á skítamórals disk. Töluvert langt síðan. Núna var það til að koma okri á framfæri. Og auðvitað var verið að okra á nauðsynjavörunni kjörís. Þarf eitthvað mikið að gerast til að ég fari að senda inn komment á svona síður en þarna var of langt gengið
Af því að ég er svo mikill töffari þá var þetta það sem ég sendi :
#1834 Ég var, eins og svo margir aðrir, í Kringlunni fyrir jólin. Ákvað að fá mér ís í ísbúðinni hjá Hagkaup. Og í fyrsta sinn á ævinni hætti ég við að kaupa mér ís af því að hann var of dýr. Lítill bragðarefur/hræringur var kominn í 790 krónur hjá þeim. Miðstærð á 890 og stór á 990 krónur. "Venjulegt" verð fyrir lítinn bragðaref hefur verið á ca. 500 krónur. Mig grunaði að ísinn hefði hækkað undanfarið en þetta var of mikið. Tæpar 800 krónur fyrir smá ís og smá nammi. Ég sá fram á að fá aldrei ís aftur. Fór í verðkönnunarleiðangur í Fákafenið í Erlu-ís. Vissulega hefur verðið þar einnig hækkað en var samt viðráðanlegra. Hjá þeim í Fákafeninu kostaði lítill bragðarefur 590kr, miðstærð 690kr og stór 790kr. Dýrt....en aðeins skárra.
Heiðdís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 21:32
Áramót ;)
aaaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
Þá er fríið búið. Við erum komin heim og vinna á morgun. Flestar jólagjafirnar komu með, nokkrar voru skildar eftir og verða sóttar eftir 2-4 vikur. Stefán fer í bæinn eftir tvær vikur og ég eftir fjórar. Við erum svo kúl.
Ah jólafríið er búið að vera yndislegt. Við erum búin að borða, sofa og hitta vini og ættingja. Spilakvöld á spilakvöld ofan, matur og eftirmatur. Já og sofið til hádegis. Hef ekki getað vaknað fyrir 11 þessar tvær vikur...nema á gamlársdag þegar við Hugrún fórum í garnleiðangur. Ég keypti mér garn í rennda ullarpeysu. Ætla að prjóna hana handa mér og skálda hana svolítið með aðstoð nokkurra uppskrifta. Það verður gaman að sjá hvernig hún kemur út. Svo er ég líka búin að sitja alein á kaffihúsum. Það var æðislegt. Alein með kaffi og slúður....aaaahhhhh. Yndislegt.
Aðfangadagskvöld var ljómandi fínt. Þó að það væri ekki hjá mömmu. Það var grafinn lax í forrétt. Þar sem ég var ekki viss um að ég vildi rjúpuna þá ákvað ég að borða extra mikið af brauði og laxi. Sá eftir því um leið og Stefán setti hamborgarhrygginn á borðið. Tengdamóðir mín gat ekki hugsað sér að ég færi hugsanlega ekki alveg pakksödd heim þannig að hún gerði bara líka hamborgarhrygg. Ég smakkaði samt rjúpuna. Borðaði eina bringu og fannst hún allt í lagi en langaði ekki í meira. Ég á afskaplega almennilega tengdamóður.
Og núna er komið 2009. Ég hef alltaf gaman af áramótum. Þá er allt eitthvað svo nýtt. Svo auðvellt og skemmtilegt að byrja á einhverju nýju. Skoða samantektir frá árinu sem er að líða og rifja upp árið. Gaman að því. Í janúar 2008 langaði mig geðveikt mikið til að breyta til. Langaði til að skipta um vinnu og þetta var alveg tíminn til að gera eitthvað crazy. Svo gerðist ekkert í janúar og löngunin dofnaði. Svo stakk Stefán Bogi uppá því að við flyttum til Egilsstaða. Ég var misáhugasöm en svo einhvernvegin bara gerðist þetta. Ég sagði já á einhverjum tímapunkti og þá var ekki aftur snúið. Við keyptum íbúð og byrjuðum bankahrunið. Er viss um að það er okkur að kenna og ég tek fulla ábyrgð á mínum þætti í gjaldþroti íslands. Vó ég ætti að verða ráðherra...
Og núna er ég á Egilsstöðum og líður mjög vel. Mér finnst íbúðin mín æðisleg og er ánægð með að hafa keypt hana, þó að ég skuldi meira en þegar ég tók lánið. Bíllinn seldur og farinn og allt á blússandi siglingu inn í hamingjuna Brúðkaup á dagskrá í lok árs ef við komum okkur saman um eitthvað.
Vinna á morgun og lífð heldur áfram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.12.2008 | 13:06
Jól
Holidays are coming holidays are coming......osfrv.
Ég er að sjálfsögðu komin í bæinn. Við komum á sunnudaginn klukkan hálf sjö. Það er ekkert gaman að fljúga svona í myrkrinu. Mér finnst svo gaman að horfa niður og reyna að fylgjast með því hvar ég er en það gengur ekki mjög vel þegar það er niðamyrkur. Kannski að ég taki vasaljós með næst.
Allavega...aumingja pabbinn minn var strax drifinn út á rakarastofu til að setja lit í hárið á mér og klippa það svo af. Og svo kom afmælisdagurinn minn. Hann fór allur í jólagjafainnkaup. Sem mér fannst mjög gaman af því að ég hef ekki komin í kringluna eða smáralindina í þrjá mánuði. Sveitastelpan er nefninlega borgarbarn inn við beinið.
Ég fann engin ný jólaföt handa mér. Mig langaði í jólakjól en brjóstin á mér voru eitthvað ekki sammála því. Þau vildu allavega ekki passa í neinn kjól sem mig langði í. Stupid body parts. Þannig að ég keypti mér leggings. Ekki alveg sambærilegt en ég fer allavega ekki í jólaköttinn. Hann kemur samt örugglega og étur Stefán af því að hann gleymdi að kaupa jólanærbuxurnar sínar. Aumingja hann.
Ég átti svo kósístund með sjálfri mér í gær. Fór á Súfistann í Iðu og fékk mér að borða og sat svo í klukkutíma með kaffibolla og las blöð og slúður. Reyndar trufluði Stefán og Friðrik mig aðeins þar sem þeir voru að borða á sushi barnum við hliðina. Stefán meðal annars með því að ræna matnum mínum þar sem ég sat og borðaði. Hann á bara ekki að velja sér hráan fisk ef hann langar frekar í crépsið mitt. Hnuss .... En það var voða kósí þegar þeir voru farnir. Þá gat ég hreiðrað um mig í horninu mínu. Lítil umferð og voða rólegt á súfistanum. Luvely'
Við Stefán fengum gefins tvær rjúpur. Við fórum með þær til mömmu hans til þess að Stefán gæti hamflett þær með fagmönnum. Það var disgusting. Fórum eftir það á þorláksmessustund í Friðrikskapellu. Þar sátum við Stefán í rigningu inni. Húsið ekki alveg að þola rigninguna. Alltaf gaman og gott að vera á þessum stundum. Fannst hún reyndar ekki alveg eins hátíðleg og oft áður sökum lagavals. En góð engu að síður.
Og núna er kominn aðfangadagur.
GLEÐILEG JÓL
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2008 | 11:26
ÉG ER AÐ KOMA !!!
Voðalega er fólk lélegt að blogga svona fyrir jólin. Koma svo....
Allavega. Við fórum að bera út jólakort á föstudaginn í kuldanum. Það var voðalega fínt. Það var skítkalt en ég var vel klædd. Ekki Stefán. Hann var í skyrtu með bindi. Ég var í flís og ull. Það var kalt en allt í lagi. Það var nefninlega logn. Ef það hefði verið hálfur metri á sekúndu þá hefði nefið dottið af mér. En það hélst á.
Í gær fórum við svo og sóttum Friðrik á Neskaupsstað. Stefán Bogi var svo spenntur að hitta hann að hann keyrði allt of hratt. Svo reyndi hann líka að taka handbremsubeygju á bílastæðinu okkar, að ég held til að sýna Friðriki hvað hann væri klár. Ég öskraði svo hátt NEI að hann hætti við. Ég vissi alveg hvað hann ætlaði að gera. Ég reyndi að minna hann á hvað hafði komið fyrir bílinn hans þegar einhver önnur gáfnaljós voru að gera það sama og rústuðu við það bílnum hans Stefáns. "Það voru líka einhverjir vitleysingar". Já já....hugsa ekki allir vitleysingar svona ???
Núna eru tveir dauðir fuglar í ísskápnum mínum. Og nei það er ekki kjúklingur. Þessir fuglar eru með fjöðrum, haus, augum, innyflum og öllu. Íjú. Jónas bóndi kom í gær með pakka til okkar sem við ætlum að fara með til Rvk. Í leiðinni kom hann með hangikjötslæri fyrir aðstoðina við smalamennsku og svo tvær rjúpur í poka í jólamatinn....rjúpudruslur. Ég er svolítið bitur yfir því að "þurfa" að borða rjúpur um jólin og þess vegna mun ég héðan í frá kalla þær rjúpudruslur
HEY .... ÉG ER ALVEG AÐ KOMA TIL REYKJAVÍKUR
Það fyrsta sem Friðrik sagði þegar hann fór á fætur áðan var "ætli það verði flogið í dag?" Smá snjór.....JÁ AUÐVITAÐ VERÐUR FLOGIÐ....ÉG ER AÐ KOMA.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2008 | 12:16
-11°
Mér finnst ég þurfa að segja frá einhverju svo merkilegu í blogginu mínu en mér dettur bara svo innilega ekki neitt í hug. Langar samt af einhverri ástæðu voða mikið til að blogga.
Klukkan er um 12 á hádegi og úti er -11 stiga "hiti". Ég fer labbandi heim á eftir. Þarf samt að fara á pósthúsið áður en ég fer heim til að koma allra síðustu kortunum út. Svo tók Stefán að sér að ganga með nokkur kort frá æskulýðsfélaginu í hús. "Gettiði" hver verður tekin með !!! Hann er búinn að vera rosa bussy þessa viku að gefa út blað fyrir UÍA þannig að ennþá eru kortin heima. Ætli þau verði ekki borin út í kvöld í kuldanum....jæja, það er allavega ekki vindur og ég á bæði snjóbuxur og góða úlpu. Annars væri þetta nú ógjörningur. Og við verðum nú að gera þetta í kvöld því planið var nú að gera eitthvað skemmtilegt með Friðrik hérna fyrir austan og ég efast að hann hafi einhverja sérstaka ánægju af því að bera út jólakort.
Við sjáumst svo bara fljótlega....nema ég verði úti í kvöld !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2008 | 12:59
Sold!
The car has left the Egilsstaðir. YESSSS. Seldur og farinn....þau geta ekki skilað honum núna...er það nokkuð ??
Og sölutrikkið....lækka verðið. En ég kem allavega ekki út í mínus. Á smá pening til að eyða í jólin og sjálfa mig og svo verður hann búinn. En það er allt í lagi. Núna get ég nefninlega hætt að borga 30.þúsund krónur á mánuði í ekki neitt. Get vonandi komið aðeins oftar til Reykjavíkur í staðin. Haustið hefði nefninlega verið fullkomið ef ég hefði komist eins og einu sinni oftar til höfuðborgarinnar, svona í lok nóvember hefði verið perfectó. Eins gott að það verði flugfært um helgina þar sem við Stefán eigum eftir að kaupa allnokkrar gjafir. Það verður gert í jólaösinni 22. og 23. desember. Kannski að maður hafi líka efni á að gefa sjálfum sér eins og eina litla afmælisgjöf...það væri nú gaman.
Við Stefán erum búin að gera jólahreingerninguna. Hún var framkvæmd um síðustu helgi. Ég skúraði. Ég geri það sko ekki oft. Merkilegt hvað mér finnst ég vera miklu fljótari að þrífa þessa íbúð heldur en kjallarann í lundahólunum. Gæti verið af því að inni í skáp eru ennþá svona þrír kassar af smádóti sem var í öllum hillum í hólunum. Og líka af því að núna er sama dóti dreyft á stærra svæði. Og að það eru gluggar á rýminu. Held að allt þetta geri það að verkum að ég er fljótari og finnst þetta ekki alveg eins leiðinlegt. Held því að smádótið fái bara að vera ennþá ofaní kassa !!! Þarf ekki að þurrka af því þar.
Annars ekkert voða mikið annað að frétta. Hér er ennþá snjór og kallt. Sem er luvely. Það má nefninlega alveg vera svoleiðis á veturna. Ég hef reyndar aldrei fundið jafn mikið fyrir skammdeginu eins og ég geri núna. Það lýsir sér aðallega í því hvað það er rosalega erfitt að koma sér á fætur á morgnanna og því að ég virðist alltaf vera dauðþreytt þegar ég kem heim. Legg mig kannski smá og get svo ekki sofnað á kvöldið. Asnalegi vítahringur. En það eru bara tveir og hálfur vinnudagur eftir....jibbí jey....þá fer ég "heim"
Jæja, best að fara að gera eitthvað
p.s. hef ennþá ekkert heyrt frá bæjarstjóranum....Hlín er hann ekki örugglega búin að sjá færsluna ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2008 | 08:43
Bæjarstjóri!!
Hlín mín ! Viltu vera svo væn að sýna Eiríki bæjarstjóra þessa færslu næst þegar hann á leið um þinn hluta af skrifstofunni ??
ÉG DATT EINU SINNI ENN !!!
Og núna var það svo sníkí.....það hefur nefninlega þiðnað allhratt og mest öll hálka farin, nema þar sem stæðstu skaflarnir voru. Ég var semsagt á leið í vinnu áðan. Niður brekkuna á göngustígnum "mínum". Ég passa mig á stóru hálkublettunum og er komin á auða partinn. Mér sýndist stígurinn vera alveg auður þangað til allt í einu ég flýg á afturendan... í ÞRIÐJA SKIPTIÐ í vetur, ANNAÐ SKIPTIÐ Á EINNI VIKU. Og hverju var það að kenna í þetta skiptið ? Ljósleysi. Ef það hefði verið ljósastaur .... ekki nema einn lítill ljósastaur.... þá hefði ég séð hálkublettinn og labbað í kringum hann. Og nei Hugrún ég vil ekki mannbrodda í jólagjöf af því að í þetta skiptið hefði ég skilið þá eftir heima.
Kröfur mínar eru eftirfarandi: Ég keypti mér íbúð á Egilsstöðum þannig að ég er ekkert á förum. Ég vil því að mínir skattar séu notaðir í A) ljósastaura á göngustígana í Selbrekkunni (allavega "minn" part, bakvið húsin þar sem engin birta er!) og B) kaupa svona litla ruðningsvél til að skafa af gangstéttum og göngustígum. Nú segir herra bæjarstjóri að það sé til lítil ruðningsvél fyrir gangstéttar og göngustíga. Ég vil fá þessa sem er með sanddreyfara aftaní! Mér er alveg sama hvort að það sé keypt ný vél með þessum skemmtilega aukabúnaði eða maður settur aftaná þá vél sem er til og hann látinn dreyfa sandi.....það er sandurinn sem ég er að sækjast eftir.
Hlín ég treysti á þig !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.12.2008 | 15:51
Stríðið við klakann...
HAHA!
Einhver þarna uppi heldur með mér þar sem klakinn er allur bráðnaður.... Gott á hann.
Ég kem "heim" eftir 9 daga....vúpsídú!!!
Annars bara allt í góðu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)